Við skipuleggjum og merkjum

Teiknistofan AKS hefur verið starfrækt á Egilsstöðum frá árinu 2015. Helstu markmið stofunnar eru að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfis- og skipulagsmála, auk þess sem hún rekur skiltagerð í sama húsnæði.

Helstu viðskiptavinir eru einstaklingar, sveitarfélög, stofnanir og einkaaðilar í fyrirtækjarekstri á Austurlandi. Samhliða þeim verkefnum rekur teiknistofan skiltagerð sem býður upp á merkingar af ýmsum toga.