Láttu sjá þig og þína starfsemi

Þurfir þú að láta merkja bíl, glugga eða láta útbúa skilti, þá erum við með áralanga reynslu í hverskyns merkingum. Við höfum gott úrval litaðra filma sem plotterinn okkar sker út með hár nákvæmum leysi allt að 120 cm breidd. Lengdin er í raun ótakmörkuð. Við notumst við eina gerð af sandblástursfilmu en hana er hægt að líma beint á gler til að draga úr sýnileika, auka friðhelgi, skera út hvaða mynstur eða texta sem er. Einnig er hægt að prenta á filmuna í lit og skera svo út eftir útlínum.

Prentarinn getur prentað hvaða myndir sem er í góðum gæðum á bæði venjulegan pappír og vínilpappír.

Við merkjum einnig íþrótta- og vinnufatnað.

Gerum okkar besta til að koma til móts við þarfir og óskir viðskiptavina og vinnum tillögur út frá hugmyndum þeirra.

Gluggafilmur

  • Sandblástur
  • Sólarfilmur
  • Speglafilmur
  • Gatafilmur

Skilti

  • Öryggismerkingar og vegaskilti
  • Stór og lítil
  • PVC og álplötur

Límmiðar

  • Utan- og innanhúss merkingar
  • Farartæki
  • Veggmyndir og texti
  • Litlir og stórir